top of page

Fjölskyldufærni

Fjölskyldufærni er námskeið fyrir foreldra og unglinga þar sem fjölskyldan fær aðstoð og leiðbeiningar bæði í sameiginlegum tímum, þ.e. fjölskyldan öll saman, en einnig er um einstaklingstíma að ræða.

Námskeiðseining miðast við 5 x 60 mínútna ráðgjafatíma á skrifstofu og svo einnig samskipti í síma og/eða í tölvu þess á milli.

Námskeiðseiningar geta verið ein eða fleiri allt eftir því hver þörfin er í hverri fjölskyldu.

Leiðbeinandi er Magnús Stefánsson fjölskylduráðgjafi ICADC.

Magnús hefur unnið sem fyrirlesari síðan árið 2001 og sem fjölskylduráðgjafi frá árinu 2005.

Magnús er menntaður sem fjölskyldu-, áfengis- og vímuefnaráðgjafi og hefur einnig menntun sem Dale Carnegie þjálfari, þar sem hann hefur verið með námskeið frá árinu 2017.

Magnús hefur einnig menntað sig í hugrænni endurforritun, CPTF/Dip.CH/ST Cert.

Nánari upplýsingar má fá í síma 8971759 og/eða með því að senda póst á magnusstef@icloud.com

Sjálfstyrkinganámskeið fyrir 16-25 ára

Viltu tengjast styrkleikum þinum betur og minnka kvíðann?

Ef svo er, þá er þetta námskeið fyrir þig.

​Nánari uppl. í síma 897-1759 eða magnusstef@icloud.com

Sjálfstyrkinganámskeið fyrir 25 ára og eldri

Öll göngum við í gegnum hluti í lífinu sem geta bæði styrkt okkur en því miður líka dregið úr okkur kraftinn og mögulega skapað kvíða, óvissu og óöryggi.

​Nánari uppl. í síma 897-1759 eða magnusstef@icloud.com

Bara aðeins lengur…

Bara aðeins lengur … er úrræði við tölvu- og/eða netfíkn.                                             Einstaklingsmiðað 6-8 vikna úrræði sem ætlað er einstaklingum á aldrinum 10 til 35 ára.

Í þessu úrræði er unnið með einstaklinginn, fjölskylduna, vinatengsl og allt það sem mögulega er að hafa eða getur haft áhrif. 

Unnið er með blandaða aðferðarfræði sem samanstendur af:

-ráðgjafatímum á skrifstofu

-örvandi viðtalstækni (MI)

-hugrænni atferlismeðferð (HAM)

-hugrænni endurforritun

-ráðgjafatímum á heimili þess sem úrræðið snýr að 

-heimaverkefnum s.s. tilfinningabók og tímatöku foreldra á tölvunotkun

-símaþjónustu við foreldra/forráðamenn og

-símaþjónustu við einstaklinginn sjálfan á meðan meðferð stendur

​Nánari uppl. í síma 897-1759 eða magnusstef@icloud.com

bottom of page